Ég get ekki séð annað en að google séu komnir með puttana í nánast allt þessa dagana. Líklegast eru þeir orðnir svo stórir að engin þorir lengur í þá ! Sá orðrómur er einnig á kreiki að þeir séu farnir að smíða eigið stýrikerfi
"Goobuntu" sem byggir á
"Ubuntu" Linux, en í ljós hefur komið að þetta stýrikerfi er eingöngu ætlað til nota innanhúss hjá Google. Svo eru þeir að smíða allskonar hugbúnað eins og
google desktop,
google earth,
picasa og síðast en ekki síst
google talk spjallforritið. Ég rann snögglega yfir picasa í dag og ég verð að segja að mér líst ansi vel á það. Þetta er umsýsluforrit fyrir stafrænar myndir ekki ósvipað Adobe Photoshop Elements eða iPhoto svo dæmi sé tekið. Ég keyri reyndar ekki windows og gat þar af leiðandi ekki prufukeyrt forritið og séð hvernig það virkar í raun en það lítur vel út og svo er það líka
Ókeypis og þýtt á
íslensku.

Hægt er að nálgast útgefin hugbúnað frá google hér:
http://www.google.com/downloads/Og fyrir þá sem vilja allan hugbúnaðarvöndulinn frá google geta þeir sótt
Google Pack sem inniheldur Google Earth, Picasa, Google Pack Screensaver, Mozilla Firefox með google tólstiku, Google Desktop, Google Toolbar fyrir Internet Explorer, Norton Antivirus 2005 Special Edition með 1/2 árs leyfi, Adaware SE Personal og Acrobat Reader 7.